Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir var í gær skipuð ferðamála- iðnaðar- og nýsköpunarráðherra í ríkisstjórn Sjálfstæðisflokks, Viðreisnar og Bjartrar framtíðar. Þórdís er 29 ára gömul og fædd og uppalinn á Akranesi. Hún er yngsta konan frá upphafi til að gegna ráðherrastöðu hér á landi . Í viðtali við visir.is í gær þakkar hún Bjarna Benediktssyni formanni...
Það styttist í að skautasvellið í „Krúsinni“ við Grundaskóla opni og standa vonir til þess að hægt verði að renna sér þar á skautum föstudaginn 13. janúar. Á fésbókarsíðu Grundaskóla kemur fram að hollvinir Grundaskóla og Slökkvilið Akraness hafi byggt upp skautasvell með mikilli þolinmæði. Skortur á frosti og kulda í vetur hefur tafið verkið...
Tveir uppaldir Skagamenn voru í byrjunarliði Íslands í 2-0 sigurleik karlalandsliðsins í knattspyrnu gegn Kína á á China Cup sem haldið er í Nanning í Kína. Arnór Smárason og Björn Bergmann Sigurðarson voru báðir í liðinu en Arnór leikur með Hammarby í Svíþjóð og Björn með Molde í Noregi. Þriðji Skagamaðurinn er með í för...
Brynjar Þór Sigurðsson íþróttakennari við Brekkubæjarskóla hefur nóg fyrir stafni eins og má sjá í þessum myndböndum sem hann hefur sett á Instagram síðu sína. „Ofur-Binni“ hefur m.a. markaðssett Akranesvitann með glæsilegum fimleikaatriðum, hann rammaði Akrafjallið inn í skemmtilegri handstöðu, en myndböndin segja allt sem segja þarf. Þess má geta að „Binni“ hefur verður 46...
Skagahjónin Guðrún og Guðmundur ætla hjóla frá Kaupmannahöfn til Parísar til styrktar krabbameinssjúkra barna „Við hjónin erum mjög mjög spennt og glöð með að fá að taka þátt í þessu frábæra verkefni sem Team Rynkeby góðgerðahjólreiðarferðin er. Þetta er heilmikil ögrun fyrir okkur og talsvert út fyrir þægindarammann á svo margan hátt,“ segir Guðrún S....
Eins og fram hefur komið hér á skagafrettir.is meiddist aðalmarkmaður karlaliðs ÍA í knattspyrnu, Árni Snær Ólafsson, illa á hné nýverið. Árni fór í aðgerð þar sem hann fékk nýtt krossband og verður hann frá keppni í marga mánuði. Forsvarsmenn ÍA hafa því samið við hinn reynslumikla markvörð Ingvar Þór Kale og gildir samningurinn út...
Ágúst Júlíusson sundmaður úr ÍA er í fremstu röð á landsvísu og landsliðsmaður. Ágúst var í öðru sæti í kjörinu á íþróttamanni ársins á Akranesi 2016 en hann hafði titil að verja frá árinu 2015. Ágúst hefur tvívegis verið kjörinn íþróttamaður Akraness, 2014 og 2015 en hann hefur vakið athygli fyrir árangur sinn þar sem...
Valdís Þóra Jónsdóttir, kylfingur úr Leyni, var í kvöld kjörinn íþróttamaður ársins á Akranesi 2016. Þetta er í fimmta sinn sem Valdís Þóra er efst í þessu kjöri en hún varð fjórum sinnum í röð íþróttamaður ársins á Akranesi á árunum 2007-2010. Sundmaðurinn Ágúst Júlíusson varð annar í kjörinu og Einar Örn Guðnason kraftlyftingamaður varð...
Kjörinu á íþróttamanni ársins á Akranesi var lýst í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka föstudaginn 6. janúar. Kylfingurinn Valdís Þóra Jónsdóttir úr Leyni varð efst í kjörinu og þar á eftir komu sundmaðurinn Ágúst Júlíusson og kraftlyftingamaðurinn Einar Örn Guðnason. Hér má sjá myndasyrpu frá athöfninni.
Það var létt yfir eigendum og gestum á Lesbókin Café sem opnaði með formlegum hætti í dag, föstudaginn 6. janúar við Akratorgið á Akranesi. Christel Björg Rúdolfsdóttir og Guðleifur Rafn Einarsson eru eigendur staðarins og máttu þau lítið vera að því að ræða við skagafrettir.is vegna anna þegar við litum þar við rétt eftir hádegi...