„Eftir jólin í fyrra ákvað ég að taka bestu ákvörðun sem ég hef tekið,“ segir hin 31 árs gamla Fanney Ýr Gunnlaugsdóttir í samtali við skagafrettir.is. Fanney breytti ýmsum áherslum hjá sér í mataræðinu og hreyfingu. Hún getur varla lýst því í orðum muninum sem hún hefur fundið á vellíðan sinni eftir þessar breytingar –...
Ljósin hans Gutta er samfélagsverkefni sem Hollvinir Grundaskóla, skólafólk á Akranesi og fleiri aðilar standa að í minningu um Guðbjart Hannesson, fyrrverandi skólastjóra Grundaskóla, bæjarfulltrúa, alþingismann og ráðherra. Þetta kemur fram á fésbókarsíðu Grundaskóla og myndin er frá Marellu Steinsdóttur. Guðbjartur Hannesson eða Gutti eins og hann var ávallt kallaður fæddist á Akranesi 3. júní...
„Maður tekur ákvörðun að fara í rekstur hér á Akranesi af því hér vill maður búa og starfa. Maður vill helst vera er þar sem hjarta manns slær. Það var alltaf einhver þörf til staðar að koma einhverju á fót hér á Skaganum – og það má segja að við höfum fundið það hér í...
Gríðarlega margir lögðu leið sína í kvöld í Garðalund þar sem að leitað var að jólasveininum eina sanna. Þetta er í fyrsta sinn sem slík leit fer fram með formlegum hætti á Akranesi. Eins og sést á þessum myndum er óhætt að segja að þeir sem enn trúa á tilvist jólasveinsins hafi skemmt sér vel...
Það var mikið fjör og skemmtileg stemmning í Grundaskóla í dag þar sem árleg kaffistofu keppni fór fram. Þar taka nemendur og starfsfólk þátt í því að skreyta sitt svæði og þar er víða komið við sögu. Allskonar þemu, ljós, söngur, flottar skreytingar og mikið lagt í þetta eins og sjá má í þessu myndbandi...
Nemendur í 10. B í Brekkubæjarskóla voru með frumlegustu jólskreytinguna í árlegri samkeppni á unglingastiginu. Dómnefnd, sem var skipuð fagfólki á þessu sviði, ásamt lesendum Skagafrétta völdu skreytinguna frá 9. B sem þá fallegustu en því miður náðist ekki að mynda nemendurna fyrir framan skreytinguna. Mikil þáttaka var í kosningunni um frumlegustu og fallegustu jólahurðina...
„Lesbókin Café, verður nafnið á kaffihúsinu, og við erum að henda okkur út í djúpu laugina því við höfum aldrei gert slíkt áður,“ sögðu Christel Björg Rúdolfsdóttir Clothier og Guðleifur Rafn Einarsson sem ætla að opna nýtt kaffihús við Akratorgið þar sem Skökkin var til húsa. „Þetta er tækifæri sem við vildum láta reyna á og...
Eins og áður hefur verið greint frá eru jólasveinar á ferð á Akranesi þessa dagana. Í nótt fengu fjögur hundruð þægir Skagamenn jólakúlu á bílinn sinn í nótt. Við hér á skagafrettir.is þurfum greinilega að bæta okkur í hegðuninni. Lofum að vera þæg og góð næstu daga. Minnum Skagamenn á að á föstudaginn fer fram formleg...
Sigurjón Ernir Sturluson mastersnemi í íþróttafræði – úrdráttur úr pistli hans á fésbókinni: Núna er kominn sá mánuður sem þykir oft ansi strembinn í æfingum og val á réttum matvælum. Það er áskorun fyrir mig og alla aðra að vera í sem allra besta formi og falla ekki alveg í óhollustuna á næstu vikum....
Allir bæjarfulltrúar Akraneskaupstaðar samþykktu þriggja ára fjárhagsáætlun sem lögð var fram á fundi bæjarstjórnar Akraness þann 12. desember. Það sem vakti mesta ánægju ritstjórnar skagafretta.is er að á þessum tíma verða 2,2 milljarðar kr. nýttir í fjárfestingar og framkvæmdir – án þess að taka lán, sem er afar jákvætt. Og haldið ykkur nú fast, nýtt...