Eins og áður hefur komið fram náði sundfólk úr röðum Sundfélags Akraness, ÍA, frábærum árangri á Íslandsmótinu í 25 metra laug sem fram fór um liðna helgi í Ásvallalaug. Þar landaði ÍA einum Íslandsmeistaratitli, tvennum silfurverðlaunum, níu bronsverðlaunum. Þrír náðu lágmörkum fyrir landsliðsval og átta...
Keppendur frá ÍA náðum flottum árangri á Íslandsmótinu í 25 metra laug í sundi sem lauk í dag í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Enrique Snær Llorens Sigurðsson fagnaði Íslandsmeistaratitli í 400m fjórsundi og Einar Margreir varð þriðji í 200 metra bringusundi. Sundfólkið vann fjölmörg önnur afrek...
Alls greindust 139 einstaklingar með Covid-19 smit í gær samkvæmt upplýsingum frá almannavörnum. Taka verður þessum tölum með þeim fyrirvara að ekki er búið að uppfæra upplýsingavefinn covid.is en það verður gert á morgun, mánudag. Í upplýsingum frá Lögreglunni á Vesturlandi kemur fram að Covid-19...
Keppendur frá Klifurfélagi ÍA og þá sérstaklega stúlkurnar náðu flottum árangri á Íslandsmeistaramótinu í klifri sem fram fór nýverið í Klifurhúsinu í Reykjavík. Keppt var í grjótglímu (e. bouldering) en mótið var fjórða og síðast mót Íslandsmeistarmótaraðarinnar fyrir árið 2021. Skagmenn voru fjölmennir en tólf...
Alls greindust 135 einstaklingar með Covid-19 smit í gær á Íslandi, föstudaginn 12. nóvember, og þar af voru 57 í sóttkví við greiningu. Þetta kemur fram í tilkynningu frá almannavarnadeild ríkislögreglustjóra. Alls eru núna 1617 einstaklingar í einangrun og 2672 í sóttkví. Þessum tölum ber...
Spurningakeppnin Bókaormar Brekkubæjarskóla fór nýverið fram en þetta var í níunda sinn sem slík keppni fer fram hjá 4.-7. bekk. Markmiðið með keppninni er að efla lestur nemenda yfir sumartímann. Frá þessu er greint á vef Brekkubæjarskóla. Nemendur í 3. – 6. bekk fá að...
Íslandsmótið í sundi í 25 metra laug fer þessa dagana fram í Ásvallalaug í Hafnarfirði. Mótið hófst í gær og því lýkur á sunnudag. Alls eru 9 keppendur frá Sundfélagi ÍA á Akranesi. Þau náðu flottum árangri á fyrsta keppnisdegi með þrenn bronsverðlaun og þrjú...
Skipulagsbreytingar eru fyrirhugaðar í skipuriti Akraneskaupstaðar – aðeins tæplega ári frá því að nýtt skipurit var sett á laggirnar. Þetta hefur Skagafréttir eftir öruggum heimildum. Starf skrifstofustjóra á skrifstofu bæjarstjóra verður lagt niður í núverandi mynd en þessi staða var sett á laggirnar í lok...
Vökudagar á Akranesi fóru fram nýverið. Fjölmargir viðburðir fóru fram á menningarhátíðinni sem hefur farið fram allt frá árinu 2002 eða tvo áratugi. Vökudagar 2021 heppnuðust vel eins og sjá má í þessu samantektarmyndbandi sem Akraneskaupstaður birti nýverið. Vökudagar hafa farið fram í október eða...
Nýverið skrifuðu tíu fimleikakonur úr Fimleikafélagi ÍA undir samning við félagið. Fimleikafélagið mun styðja við bakið á þessu efnilegu konum með ýmsum hætti – þar á meðal niðurfellingu á æfingagjöldum, útvega þeim keppnis – og æfinga fatnað. Fimleikakonurnar efnilegu leggja sitt af mörkum í þessu...