• Oliver Stefánsson, sem lék með ÍA á síðasta tímabili, hefur rift samningi sínum við sænska úrvalsdeildarliðið Norrköping. Þetta kemur fram á fotbolti.net. Oliver ætlar sér að leika með liði í efstu deild á Íslandi og eru mörg lið sem hafa áhuga á Skagamanninum. Oliver er fæddur árið 2002 og verður því 21 árs á þessu ári. Hann...

  • Akraneskaupstaður hefur gengið frá kaupum á landi Akrakots – sem er í landi Hvalfjarðarsveitar rétt utan við Akranes. Samningur þess efnis var undirritaður þann 7. febrúar 2023. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Viðstödd undirritunina voru systkinin frá Akrakoti,, sem seljendur, bæjarstjórn, bæjarstjóri, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs og ráðgjafi seljenda Akrakots.Í tilkynningunni kemur fram að Akraneskaupstaður...

  • Á næstu misserum verða miklar framkvæmdir og endurbætur í elstu byggingu Grundaskóla – sem oft er kölluð C-álma. Akraneskaupstaður bauð út verkefnið nýverið og bárust aðeins tvö tilboð í verkið. Kostnaðaráætlun Akraneskaupstaðar var upp á 1.213 milljónir kr.  Sjammi ehf. sem er fyrirtæki með aðsetur á Akranesi bauð rétt tæplega 1.390 milljónir kr. í verkefnið – sem er...

  • Gísli J. Guðmundsson, rakari á Akranesi, setti af stað söfnun í vikunni þar sem að markmiðið er að styðja við bakið Helgu Ingibjörgu Guðjónsdóttur. Helga Ingibjörg er um þessar mundir í lyfjameðferð vegna krabbameins. Hún hefur talað opinskátt um verkefnið og er í framvarðarsveit í auglýsingaherferð Krafts sem er í gangi um þessar mundir. Fjölmargir hafa lagt söfnunni...

  • Vel á annað hundrað börn mættu á kynningaræfingar í handbolta sem fram fóru s.l. sunnudag í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Um var að ræða fyrstu kynninguna á Akranesi í útbreiðsluátaki sem Handknattleikssamband Ísland stendur á bak við í samvinnu við ÍA. Boðið var upp á æfingar fyrir nemendur í 1. – 4. bekk og 5. – 7....

  • Eins og áður hefur komið fram á Skagafréttum eru miklar framkvæmdir og breytingar fyrirhugaðar á íþróttasvæðinu við Jaðarsbakka.Ísold fasteignafélag hefur lýst yfir áhuga á að byggja upp heilsutengda ferðaþjónustu á svæðinu – og hefur Íþróttabandalag Akraness og Knattspyrnufélag Akraness verið með í þeirri hugmyndavinnu. Á síðasta fundi bæjarráðs voru drög að viljayfirlýsingu um verkefnið lögð fram....

  • Söngleikurinn Nornaveiðar var frumsýndur í gær í Grundaskóla. Nemendur úr árgangi 2007 eru í aðalhlutverki í þessu verkefni. Söngleikurinn var fyrst sýndur árið 2013 eða fyrir áratug.Höfundarnir eru Flosi Einarsson, Einar Viðarsson og Gunnar Sturla Hervarsson. Alls koma um 40 nemendur að þessu verkefni með einum eða öðrum hætti. Meðal verkefna má nefna eru leikmynd, hárgreiðsla, förðun, markaðsmál,...

  • Handknattleiksíþróttin var á árum áður stór hluti af íþróttamenningunni á Akranesi. ÍA var með lið á Íslandsmótum í kvenna – og karlaflokki um margra áratuga skeið – en Handknattleiksfélag Akraness lagðist af rétt fyrir síðustu aldamót. Hanknattleikssamband Íslands, HSÍ, í samstarfi við ÍA, verður með kynningu á handboltíþróttinni á Akranesi með reglulegu millibili á næstu vikum....

  • Sævar Freyr Þráinsson bæjarstjóri lýkur störfum fyrir Akraneskaupstað í lok mars en hann hefur verið ráðinn forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Akraneskaupstað. Bæjarstjórn Akraness sendi í dag frá sér eftirfarandi tilkynningu:„Bæjarstjórn Akraness óskar Sævari Frey til hamingju með nýja starfið og óskar honum velfarnaðar á nýjum vettvangi, en hann mun láta af störfum...

  • Fréttavefurinn skagafrettir.is fór í loftið í lok ársins 2016 og er því að hefja sitt sjöunda starfsár.Frá upphafi hafa fréttir af því sem gæti lýst upp samfélagið á Akranesi með jákvæðum hætti – verið rauði þráðurinn í fréttaflutningi Skagafrétta.Í dag eru í fréttasafni Skagafrétta rúmlega 5000 fréttir – og flestar þeirra sólarmeginn í tilverunni.Fréttir sem...

Loading...