Íþróttamaður Akraness, 2018, Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni er stödd í Bandaríkjunum þessa stundina. Valdís Þóra mun á næstu dögum keppa á 2. stigi úrtökumótsins fyrir sterkustu atvinnumótaröð heims, LPGA. Frá þessu er greint á golf.is. Valdís Þóra komst í gegnum 1. stig úrtökumótsins fyrir LPGA í lok ágúst á þessu ári. Það er...
Íþróttabandalag Akraness, ÍA, er gengið í raðir UMFÍ. ÍA sótti um inngöngu í Ungmennafélag Íslands ásamt tveimur öðrum íþróttabandalögum og var umsóknin tekin fyrir sambandsþingi UMFÍ í gær. Íþróttabandalag Reykjavíkur (ÍBR) og Íþróttabandalag Akureyrar (ÍBA) gengu einnig í raðir UMFÍ. ÍA er þar með aðili að Íþrótta – og ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ) og UMFÍ. Þetta...
Bakir Anwar Nassar er fæddur árið 1997 í Írak. Hann kom hingað til lands með móður sinni og tveimur systkinum í september árið 2008. Bakir eins og hann ávallt kallaður hefur vakið athygli fyrir góðan námsárangur og hann er einnig efnilegur framherji í knattspyrnunni. Bakir „rúllaði“ upp stúdentsprófinu af náttúrufræðibraut í Fjölbrautaskóla Vesturlands og fékk...
Skagamenn lönduðu sínum fyrsta sigri í 2. deild karla í körfuknattleik í gær þegar liðið tók á móti liði Stálúlfs. Leikurinn fór fram í íþróttahúsinu við Jaðarsbakka. Sóknarleikur var það eina sem var í boði í þessum leik. Staðan í hálfleik var 70-64 og lokatölur 143-124 Þetta var fyrsti sigur ÍA í fyrstu þremur leikjunum...
Mjög góð mæting var á íbúaþing um lærdómssamfélagið á Akranesi sem fram fór þann 2. október s.l. Um 120 manns tóku þátt og fór íbúaþingið fram í húsakynnum Fjölbrautaskóla Vesturlands á Akranesi. Yfirskrift íbúaþingsins var með vísan til þess að í stofnunum bæjarins sé starfsfólk tilbúið til að læra og tileinka sér nýja hluti. Ýmis...
Skagamaðurinn Brynjar Már Ellertsson hefur á undanförnum dögum dvalið í borginni Kazan í Rússlandi þar sem að heimsmeistaramót 19 ára og yngri í badminton fer fram. Það er mikið afrek að komast á sjálft heimsmeistaramótið og fer þessi keppni í reynslubankann hjá einum efnilegasta badmintonleikmanni landsins. Brynjar Már og Karolina Prus komust í gegnum 1....
Í Brekkubæjarskóla á Akranesi hafa nemendur látið ljós sitt skína á Morgunstundum sem haldnar eru með reglulegu millibili. Á þessum Morgunstundum koma nemendur og starfsfólk Brekkubæjarskóla saman í íþróttahúsinu við Vesturgötu. Mikið er lagt í verkefnið og margar hendur sem koma að þeim undirbúningi. Dagskráin á Morgunstundinni er fjölbreytt og hæfileikar nemenda fá að njóta...
„Stelpur sem ljúga“ er framhald af fyrstu skáldsögunni minni „Marrinu í stiganum,“ segir rithöfundurinn Eva Björg Ægisdóttir við skagafrettir.is „Marrið í stiganum“ vakti mikla athygli þegar hún kom út vorið 2018. Eva Björg, sem er fædd á Akranesi, fékk m.a. spennusagnaverðlaunin Svartfuglinn fyrir bókina og í kjölfarið gerði hún útgáfusamning við breskt fyrirtæki. Eva Björg...
Arnór Sigurðsson, atvinnuknattspyrnumaður, er eftirsóttur og hafa stórlið sýnt hinum tvítuga Skagamanni áhuga. Arnór staðfestir í viðtali við fotbolti.net að fyrirspurnir hafi borist frá Napólí á Ítalíu og Dortmund í Þýskalandi. Einnig hafa fjölmörg lið á Englandi sýnt Arnóri áhuga. Viðtalið í heild sinni á fotbolti.net. Arnór er samningsbundinn rússneska liðinu CSKA í Moskvu. Félagið...
Áshöfnin á uppsjávarskipinu Bjarna Ólafssyni AK 70 er í fremstu röð þegar kemur að síldveiðum. Þessa stundina er Bjarni Ólafsson á leið til hafnar með um 900 tonn af norsk-íslenskri síld. Það tók ekki langan tíma fyrir skipverja að fylla stálmaga Bjarna Ólafssonar eins og fram kemur í fésbókarfærslu Bjarna Ólafssonar.