Fimm fyrrum Íslandsmeistarar í holukeppni eru á meðal keppenda á Securitas-mótinu, Íslandsmótinu í holukeppni, sem fram fer á Garðavelli á Akranesi 21.-23. júní. Um er að ræða þriðja mótið af alls fimm á Mótaröð þeirra bestu á keppnistímabilinu 2019. Þrír fyrrum meistarar eru í karlaflokki og tveir í kvennaflokki. Rúnar Arnórsson úr GK mætir í...
Á fundi skóla- og frístundaráðs þann 4. júní síðastliðinn var farið yfir umsóknir um styrki til íþrótta- og tómstundafélaga 2019. Ráðið vísar tillögu að úthlutun til staðfestingar í bæjarráði. Bæjarráð samþykkti á síðasta fundi sínum tillöguna um eftirfarandi úthlutun styrkja til íþrótta- og tómstundafélaga á árinu 2019: Knattspyrnufélag ÍA/UKÍA kr. 4.265.342 Fimleikafélag Akraness kr. 3.278.169....
Byggðasafnið í Görðum á Akranesi var til umfjöllunar í þættinum Að Vestan sem sýndur er á sjónvarpsstöðinni N4. Heiðar Mar Björnsson og Hlédís Sveinsdóttir fara vítt og breitt um Vesturland í þáttunum sem vakið hafa mikla athygli. Rætt er við Ellu Maríu Gunnarsdóttur sem stýrir menningar – og safnamálum hjá Akraneskaupstað. Byggðasafnið í Görðum fagnar...
ÍA lagði Hauka í kvöld í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu á Norðurálsvellinum á Akranesi. Með sigrinum blandaði hið unga og efnilega lið ÍA sér í toppbaráttuna í næst efstu deild Íslandsmótsins. Fríða Halldórsdóttir skoraði eina mark leiksins. Leikurinn var í beinni útsendingu á ÍA TV.
„Við hafið“ er lag sem er í miklu uppáhaldi hjá söngkonunni Rakel Pálsdóttur. Myndband af flutningi hennar af þessu norska lagi er hér fyrir neðan. Skagamaðurinn Kristinn Gauti Gunnarsson sá um myndbandsupptökur og klippingu. „Loksins! Þetta fallega lag er í miklu uppáhaldi og mig hefur lengi dreymt um að gefa það út sjálf. Lagið er...
ÍA og Haukar eigast við í kvöld í Inkasso-deild kvenna í knattspyrnu. Leikurinn hefst kl. 19.15 á Norðurálsvellinum á Akranesi. Helena Ólafsdóttir þjálfari ÍA hvetur stuðningsmenn liðsins til þess að mæta á leikinn og styðja við bakið á hinu unga liði ÍA. ÍA er í næst efsta sæti deildarinnar eftir fjórar umferðir. Árangur liðsins er...
Skagamaðurinn Arnór Sigurðsson er í sumarfríi í gamla heimabænum um þessar mundir. Arnór, sem verður tvítugur á þessu ári, leikur sem atvinnumaður hjá CSKA Moskvu í Rússlandi og hann hefur leikið með A-landsliðinu á undanförnum misserum. Arnór var staddur á leik Kára og Dalvíkur/Reynis um s.l. helgi og hér má sjá viðtal sem ÍA TV...
Bjarni Skúli Ketilsson var í gær útnefndur bæjarlistamaður Akraness. Valgarður Lyngdal Jónsson, forseti bæjarstjórnar Akranessl, greindi frá útnefningunni á 17. júní hátíðarhöldunum á Akratorgi í gær. Á hverju ári velur menningar- og safnanefnd Akraneskaupstaðar bæjarlistamann Akraness. Nefndin óskar eftir tilnefningum um valið frá íbúum bæjarins, vinnur úr þeim tilnefningum sem berast og velur svo einn...
Gríðarlegur mannfjöldi safnaðist saman í dag á Akratorgi þegar 17. júní hátíðarhöldin fóru fram á Akranesi. Veðrið lék við gesti og má skjóta því föstu að sjaldan hafi fleiri mætt á hátíðarhöldin á þjóðhátíðardegi Íslands. Það var fjölbreytt dagskrá á Akratorginu og hér má sjá myndasyrpu frá hátíðarhöldunum. Loftmyndirnar tók Hjalti Sigurbjörnsson.
ÍA og KR áttust við í PepsiMax-deild karla í knattspyrnu í dag á Norðurálsvellinum. KR tyllti sér á topp deildarinnar með 3-1 sigri. Framtíðarleikmenn ÍA úr 8. flokki félagsins voru himinlifandi með daginn eins og sjá má í myndasyrpunni hér fyrir neðan. Krakkarnir fengu að ganga inn á leikvöllinn með leikmönnum beggja liða inn á...