NFL leikmaðurinn Cam Newton fagnaði snertimarki þann 15. nóvember árið 2015 með danshreyfingu sem kallas „Dab“. Það má segja að frá þeim tíma hafi nánast hvert einasta mannsbarn tekið eitt „Dab“ við ýmis tækifæri. Þessi danshreyfing hefur verið rakinn til rapptónlistarmenningar í Atlanta en kannski var ungur maður frá Akranesi langt á undan með „DABIÐ.“...
Skagamaðurinn Björn Bergmann Sigurðarson hefur farið á kostum í norsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu með liði sínu Molde. Björn Bergmann skoraði sitt 14. mark á leiktíðinni í 2-1 sigri Molde á útivelli gegn Valerenga í Osló í síðustu umferð. Markið hjá íslenska landsliðsmanninum má sjá hér fyrir neðan. Nicklas Bendtner, fyrrum leikmaður Arsenal, er markahæstur í deildinni...
Skagamenn léku stórt hlutverk með U15 ára landsliði pilta í knattspyrnu í vináttulandsleikjum gegn Færeyjum. Fjórir leikmenn úr ÍA voru í hópnum og til viðbótar var einn leikmaður sem er nýfluttur frá Akranesi. Fyrri leikurinn gegn Færeyjum endaði 5-1 fyrir Ísland og 7-0 voru lokatölurnar í síðari leiknum í Akraneshöllinni á laugardaginn. Ísak Bergmann Jóhannesson...
Vökudagar, menningarhátíð Skagamanna, heldur áfram í þessari viku og eru fjölmargir viðburðir á dagskrá. Í dag eru tvær sýningar í Bíóhöllinni fyrir nemendur í 5.-7. bekk og í kvöld er bókmenntakvöld á Bókasafninu undir yfirskriftinni „Ég kyssi ekki aftur kóng og fjall“. Dagskráin er eins og áður segir fjölbreytt fyrir þessa viku og hér fyrir...
Skagamenn halda áfram að safna leikmönnu fyrir næsta tímabil í Inkasso-deildinni í knattspyrnu karla. Í dag skrifaði Hörður Ingi Gunnarsson undir samning við ÍA til þriggja ára. Hörður hefur leikið ýmsar stöður í vörninni en hann er fæddur árið 1998 og verður því tvítugur á næsta ári. Hörður er uppalinn hjá FH og lék með Víking...
Valdís Þóra Jónsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi var hársbreidd frá sigri á LET Access mótaröðinni en mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu. Mótið fór fram á Spáni og endaði Valdís Þóra í 2. sæti. Þetta er besti árangur Íslandsmeistarans 2017 á LET Access mótaröðinni. Valdís Þóra, sem var kjörinn íþróttamaður ársins hjá ÍA...
Þessi pistill verður ekki jafnlangur og Reykjavíkurbréf í Mogganum. Ég vann reyndar á Mogganum í áratug og las aldrei Reykjavíkurbréfið. Ég sá bara að það var alltaf mjög langt, með rosalega marga bókstafi og engar myndir. Ég ætla samt að hvetja þig að halda áfram að lesa – ég er búinn að eyða mjög miklum...
Það er nóg um að vera á Vökudögum, menningarhátíð Akraness 2017, í dag. Eins og sjá má á myndunum hér fyrir neðan eru fjölmargir viðburðir í gangi alla daga hátíðarinnar. Í dag hefst dagskráin í Akraneskirkju kl. 9:30, á Lesbókinni verða hádegistónleikar, opin vinnustofa í Samsteypunni, málþing um knattspyrnu, Vesturlandsslagur í körfubolta, opnun ljósmyndasýningar hjá...
Guðbjörg Árnadóttir hlaut Menningarverðlaun Akraness 2017 fyrir framúrskarandi framlag til menningarmála á Akranesi. Verðlaunin voru afhend í gær við setningu menningarhátíðarinnar Vökudaga af Ingþóri Bergmann Þórhallssyni, formanni menningar- og safnanefndar. Guðbjörg Árnadóttir hefur um áratuga skeið unnið ötullt og óeigingjarnt starf fyrir Skagaleikflokkinn, nú Leikfélagið Skagaleikflokkinn og komið að fjölmörgum leiklistartengdum viðburðum á Akranesi. Guðbjörg...
Hallur Flosason hefur framlengt samning sinn við Knattspyrnufélag ÍA um 2 ár og gildir samningur út leiktíðina 2019. Hallur er 24 ára uppalinn hjá ÍA og hefur verið einn af lykilmönnum Skagamanna. Í tilkynningu frá ÍA segir að Hallur sé mikilvægur fyrir framtíðina á Skaganum en hann hefur spilað 65 leiki með meistaraflokki og skorað...